Monday, September 10, 2007

stilla sig

æ stundum er ég svo fruntaleg óþolinmóð og fljótfær og skortir alla meðlíðun m fólki, en það kemur i hausinn/magann á manni síðar, við geitur sáum Veðramót í gær, í bíóinu voru allir fyrir mér, hafði nær því gert samferðafólk í miðaröð höbbðinu styttra f sauðshátt, tveir drengir afgreiddu í sjoppunni og fóru vart fetið og kaupendur skynjuðu ekki sinn vitjunartíma . . . jíííi, ég náði samt að slíta út tvo litla popp og appelsín sem mér fannst dáldið þungt þegar ég hrammsaði það til mín á skenknum og stikaði inn í sal, stakk röri oní og saug ákaflega, snögglega missti ég alla lífslöngun í 2 sek, í þessu fokkings "appelsínglasi" var hálft kíló af poppsalti og ég hafði náð að þyrla stórum hluta þess oní mig og yfir, og þvílíkt ógeðððððð, ansi gott á mig! ég lúskraðist m gumsið fram og náði í rétta glasið, úffff -

No comments: