Wednesday, September 19, 2007

ansi liður timinn ha?

allt farið að virka, þriðju gráðu aðhald, kórbindindi, massív hreyfing og frönskunám sem byrjaði vel í gær og ég færðist strax upp um bekk, liggaliggalá! nema það setur dáldið skorður við briddsinu. jæja við finnum útúr því, - svo má ekki gleyma að klára myllukeppnina sem hófst í Pamplóna, tveir leikir (2x3) eftir í MYLLA OPEN - var að fatta að það getur bara verið þokkalega gefandi íþrótt að strauja, ekki sem verst, ekki skemmir að tala þá við sjálfan sig ALLAN tímann, þarf bara betri straugræjur - gott vinnupartí í gamla borgarbókasafninu á fös og hágæðakjúlli hjá betu og pétri á lau m stínu, við skoðuðum gamlar myndir, m.a. frá Korsíku 1979 og hrundum í algjöra nostalgíu

No comments: